03.02.2025 11:48:00
|
Nova Klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar
Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. verður haldinn 27. mars 2025 og óskar tilnefningarnefnd nú eftir framboðum til stjórnar félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þau framboð sem berast og velur úr þeim frambjóðendur sem nefndin álítur hæfa til setu í stjórn félagsins. Tillaga nefndarinnar er aðeins ráðgefandi en bindur hluthafa ekki þegar til stjórnarkjörs kemur.
Tilkynningu um framboð, ásamt ferilskrá, skal skilað á netfangið tilnefningarnefnd@nova.is. Hægt er að nálgast framboðseyðublað á fjárfestasíðu félagsins, sjá hér. Farið verður með öll framboð sem berast tilnefningarnefnd sem trúnaðarmál og listi yfir frambjóðendur verður ekki birtur.
Frestur til að skila inn framboðum til tilnefningarnefndar er til og með 10. febrúar 2025. Nefndin áskilur sér þó rétt, eftir atvikum, til að fjalla um framboð sem berast síðar.
Allir núverandi stjórnarmenn hyggjast gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Niðurstaða nefndarinnar um tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund, með tillögum stjórnar til fundarins.
Almennum framboðsfresti til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir aðalfund, eða kl. 16:00 þann 22. mars 2025. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran, formaður tilnefningarnefndar Nova, á thelma@intellecta.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/NTAyODBhYjAtZmVhZS00Y2IxLThjYmUtZGZjODQ5MWU1NzQ5LTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)
![](https://images.finanzen.at/images/unsortiert/wertpapierdepot-absichern-aktienchart-boerse-750493204-260.jpg)
Wenn Sie mehr über das Thema Aktien erfahren wollen, finden Sie in unserem Ratgeber viele interessante Artikel dazu!
Jetzt informieren!
Nachrichten zu Nova Klubburinn hf. Registered Shsmehr Nachrichten
Keine Nachrichten verfügbar. |
Analysen zu Nova Klubburinn hf. Registered Shsmehr Analysen
Aktien in diesem Artikel
Nova Klubburinn hf. Registered Shs | 4,16 | -0,95% |
|