27.03.2024 15:06:48

Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 21.803.205, en á aðalfundi félagsins þann 7. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins:

"Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 7. mars 2024 samþykkir að hlutafé félagsins verði, lækkað um kr. 21.803.205 að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 1.178.393.205 að nafnverði í kr. 1.156.590.000 að nafnverði." 

Óskað hefur verið eftir því við Nasdaq verðbréfamiðstöð um að lækka skráð hlutafé til samræmis, fyrsti viðskiptadagur eftir lækkunina mun vera 2. apríl 2024. Fyrir hlutafjárlækkunina á Sjóvá 21.803.205 eigin hluti eða sem nemur 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Eftir hlutafjárlækkunina á Sjóvá enga eigin hluti.

Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is


Nachrichten zu Sjova-Almennar HFmehr Nachrichten

Keine Nachrichten verfügbar.

Analysen zu Sjova-Almennar HFmehr Analysen

Eintrag hinzufügen
Hinweis: Sie möchten dieses Wertpapier günstig handeln? Sparen Sie sich unnötige Gebühren! Bei finanzen.net Brokerage handeln Sie Ihre Wertpapiere für nur 5 Euro Orderprovision* pro Trade? Hier informieren!
Es ist ein Fehler aufgetreten!

Aktien in diesem Artikel

Sjova-Almennar HF 0,00 0,00% Sjova-Almennar HF